Mættu nákvæmlega eins klæddar

Julia Roberts og Elizabeth Stewart voru flottar í eins fötum.
Julia Roberts og Elizabeth Stewart voru flottar í eins fötum. AFP

Leikkonan Julia Roberts og stílistinn hennar, Elizabeth Stewart, stálu senunni á verðlaunum tímaritsins InStyle. Þær Roberts og Stewart eru ekki svo ólíkar og mættu í eins fötum. Litu þær stöllur út eins og tvíburar klæddar í fjólublá jakkaföt fyrir bæði kynin frá Givenchy. 

Roberts sagði í viðtali við InStyle að það sé ekki oft sem þær fá að fara eitthvað saman og því hafi þær ákveðið að gera eitthvað skemmtilegt eins og að vera í eins fötum. 

Ef stjörnur lenda í því að klæðast sama dressinu er oft spurt hvor hafi klæðst því betur en í tilviki þeirra Robets og Stewart er það varla hægt enda voru þær með með eins hárgreiðslu, í eins skóm og með svipaðar töskur. Eina sem var ekki eins var hárliturinn og gleraugu Stewart. 

Þær Julia Roberts og Elizabeth Stewart gætu verið tvíburar.
Þær Julia Roberts og Elizabeth Stewart gætu verið tvíburar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál