Krónprinsessurnar í sínu fínasta pússi

Mary valdi svartan kjól á meðan Mette-Marit glitraði í silfruðum …
Mary valdi svartan kjól á meðan Mette-Marit glitraði í silfruðum kjól í Buckingham-höll. Samsett mynd

Krónprinsessurnar í Noregi og Danmörku skörtuðu sínu fínasta eins og annað kóngafólk þegar þær mættu í afmæli Karls Bretaprins í Buckingham-höll á miðvikudaginn. Ljósmyndarar fengu ekki aðgang að boðinu en myndir af þeim prinsessunum dönsku og norsku birtust á heimasíðum konungsfjölskyldnanna. 

Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa voru í stíl í svörtu. Var Mary með aðra öxlina bera í einstaklega fallegum flauelskjól frá danska hönnuðinum Jesper Hovring.

Friðrik og Mary.
Friðrik og Mary. ljósmynd/Kongehuset.dk

Stallsystir hennar frá Noregi, Mette-Marit, mætti ásamt Hákoni krónprinsi og tengdaforeldrum, Sonju drottningu og Haraldi Noregskonungi. Var Metta-Marit stórglæsileg í silfruðum kjól og eiginmaður hennar nútímalegur í bláum jakkafötum. Sonja drottning var ekki síður glæsileg í fjólubláum síðkjól. 

Hákon, Mette-Marit, Sonja og Haraldur.
Hákon, Mette-Marit, Sonja og Haraldur. ljósmynd/Kongehuset.no




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál