Viltu gera eitthvað nýtt og öðruvísi þegar þú ferð í jólaklippinguna? Leikkonan Anne Hathaway breyttist töluvert bara við það að lita hár sitt rautt en það má segja að hárliturinn sé tilvalin fyrir jólin.
Stjarnan var mynduð á götum New York-borgar á dögunum með rautt hár sem fór sérstaklega vel við bleika kápuna. Líklega litaði hún á sér hárið fyrir verkefni sem hún er að leika í. Það er þó engin ástæða fyrir Hathaway að halda ekki í litinn yfir jólahátíðina enda stórglæsileg með rautt hár.