Katrín hertogaynja fór í sitt fínasta púss þegar hún mætti í boð Elísabetar drottningar í Buckingham-höll á þriðjudagskvöldið. Katrín setti á sig kórónu fyrir tilefnið en kórónan sem hún bar er kölluð Cambridge Lover's Knot-kórónan og var í uppáhaldi hjá Díönu prinsessu.
Það er eitt sem einkennir prinsessur fyrir utan bláa blóðið og það eru kórónur. Katrín sem ber ekki prinsessutign leit út eins og alvöruprinsessa með kórónuna í hvítum sérsniðnum síðkjól frá Jenny Packham.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Katrín notar kórónuna sem var áður í eigu Díönu. Hún hefur til að mynda notað hana við sama tilefni síðustu ár. Katrín er ekki bara með sama smekk og Díana á kórónum heldur greinir People frá því að hún hafi verið með perlueyrnalokka sem áður voru í eigu Díönu heitinnar.
Drottningin og Camilla, eiginkona Karls Bretaprins, voru einnig með kórónur á höfði í veislunni.