Það þarf ekki að eyða allri desemberuppbótinni til þess að klæða sig upp á í desember á sama hátt og Meghan hertogaynja gerir. Hertogaynjan er hrifin af jakkafatakjólum og er hægt að finna einn slíkan í Zöru á aðeins 6.995 krónur.
Meghan klæddist hvítum og stuttum ermalausum jakkafatakjól frá Maggie Marlyn í heimsókn sinni til Nýja-Sjálands í lok október. Svarti kjóllinn úr Zöru er mjög líkur kjól Meghan fyrir utan litinn og bera bakið, einhverjir myndu segja að bera bakið væri bara flottara.
Hertogaynjan myndi klárlega gefa grænt ljós á kjólinn frá Zöru enda sjálf klæðst svörtum jakkafatakjól, sá var hins vegar með ermum.