Courtney Cox er hætt að láta fylla í andlit sitt og hefur aldrei liðið betur. Í viðtali við People segist hin 54 ára leikkona úr Vinum hafa áttað sig á því að hún hafi verið hætt að líta út eins og hún sjálf með fyllingar í andlitinu.
„Ég myndi segja að það væri algengt að ganga í gegnum þetta þegar þú eldist, sérstaklega í Hollywood,“ sagði Cox um fegrunaraðgerðirnar og hvernig hún reyndi að halda í unglegt útlitið. „Þú verður að sættast við það að eldast og það er eitthvað sem ég átti mjög erfitt með.“
Nú eru næstum því tvö ár síðan Cox tók ákvörðun um að hætta að fara í fegrunaraðgerðir og er hún sátt við sitt náttúrulega útlit.
„Nú fagna ég bara því sem ég er og að eldast með það sem guð gaf mér, ekki hverju ég var að reyna að breyta.“
Segist hún vera komin á það stig í lífi sínu að henni líði vel og á auðvelt með að vera sú sem hún er og hver hún vill verða.