Victoria Beckham er búin að komast að því hvernig má auðveldlega láta sem útlimirnir séu lengri en þeir eru. Einhverjir myndu segja að hún væri einfaldlega í allt of stórum fötum en aðrir telja þetta frábært tískutrix.
Frú Beckham sýndi haust- og vetrarlínu sína um síðustu helgi og leit út fyrir að vera með ofurlanga útlimi í hönnun sinni. Svo er hins vegar ekki en hin fíngerða Beckham er bara um 163 sentimetrar á hæð. Útvíðar vel gyrtar svartar dragtarbuxur blekktu augað en þær náðu vel niður á gólf þó svo hún væri á hælum.
Það er kannski kominn tími til að hætta að stytta buxur og bretta upp á ermar. Það sama gildir einnig um skyrtuna sem Beckham var í undir fallegri brúnni peysu úr nýrri línu. Hún þarf ekki vettlinga þar sem skyrtuermarnar voru allt of langar miðað við hefðbundnar hugmyndir um ermar.