Celine Dion var strítt fyrir útlit sitt

Celine Dion ásamt vini sínum Pepe Munoz. Dion segist hafa …
Celine Dion ásamt vini sínum Pepe Munoz. Dion segist hafa verið strítt fyrir útlit sitt þegar hún var yngri. mbl.is/AFP

Í vikunni var tilkynnt að söngkonan Celine Dion væri nýjasta talskona snyrtivörumerkisins L'Oréal. Dion bjóst ekki við því að skrifa undir fyrsta snyrtivörusamninginn sinn við franska snyrtivörumerkið 51 árs gömul. 

Dion segir á vef Vogue að henni hafi verið strítt fyrir útlit sitt þegar hún var í skóla en hún segist hafa átt í vandræðum með tennurnar og verið mjög, mjög grönn. Þess vegna hélt hún að hún fengi aldrei boðið, hvað þá 51 árs. „Þetta er kraftaverk,“ lýsti hún á vef InStyle

Dion mun byrja á því að sitja fyrir í hárauglýsingu og þrátt fyrir að vera eldri en margar fyrirsætur eru þær margar eldri en hún hjá L'Oréal. Snyrtivörumerkið hefur notað eldri konur á borð við Jane Fonda, Julianne Moore og Susan Sarandon til þess að auglýsa vörur sínar. 

Celine Dion.
Celine Dion. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál