Meghan hertogaynja hefur verið í opinberri heimsókn í Suður-Afríku undanfarna daga. Þegar fatastíll hennar er skoðaður er augljóst að hertogaynjan er mjög hrifin af svokölluðum skyrtukjólum eða kjólum sem líta út eins og skyrtur.
Meghan hefur sést í bæði gömlum og nýjum skyrtukjólum í heimsókninni en hún hefur verið dugleg að endurnýta eldri föt úr fataskápnum í ferðinni. Kjólarnir eiga það sameiginlegt að vera einlitir og teknir saman í mittið.
Kjólarnir virðast keimlíkir en eru þó missíðir og var Meghan til að mynda í skósíðum skyrtukjól þegar hún heimsótti mosku í Höfðaborg í síðustu viku.
Það kann að vera að skyrtukjólarnir komi sér vel í brjóstagjöfinni en Meghan notar skyrtukjóla líka þegar hún er ekki með son sinn með sér. Hún mætti til að mynda á tennismót í New York í byrjun september í skyrtukjól úr gallaefni en þá varð ungur sonur hennar eftir á Englandi með föður sínum, Harry Bretaprins.