Með þráhyggju fyrir korsiletti

Dita Von Teese er þekkt fyrir kvenleika og kynþokka sinn. …
Dita Von Teese er þekkt fyrir kvenleika og kynþokka sinn. Hún sýnir hér korsilett úr smiðju Jean Paul Gaultier. Anne-Christine POUJOULAT / AFP

Jean Paul Gaultier, franski fatahönnuðurinn sem hannaði hinn eina og sanna keilubrjóstahaldara Madonnu í byrjun tíunda áratugarins, kom öllum að óvörum þegar hann ákvað að hátískusýning sín í ár yrði sú síðasta. Glæstur ferill hans spannar hálfa öld þar sem gleði, dirfska og jafnvel húmor einkenndu hönnun hans. 

Ögraði tískuheiminum

Gaultier lauk aldrei formlegri menntun í hönnun eða fatasaumi en kom sér á framfæri með því að senda teikningar sínar til þekktra fatahönnuða í París. Árið 1970 var það Pierre Cardin sem réð hann sem aðstoðarmann sinn og sex árum síðar leit fyrsta fatalína Gaultier dagsins ljós. Götutíska og poppmenning einkenndu hefðbundnar fatalínur hans á meðan hátískuhönnun hans voru mun fágaðri en í senn óvenjulegar. Gaultier ögraði tískuheiminum gjarnan með vali sínu á fyrirsætum en á tískusýningum hans mátti sjá íturvaxnar konur, eldri karlmenn, fyrirsætur með húðflúr og lék hann sér gjarnan með hin hefðbundnu kynjahlutverk. Dæmi um eitt slíkt er þegar hann hannaði pils fyrir karlmenn um miðjan níunda áratuginn. 

Jean Paul Gaultier hannaði goðsagnarkennda keilubrjóstahaldara Madonnu fyrir tónleikaferðalag hennar …
Jean Paul Gaultier hannaði goðsagnarkennda keilubrjóstahaldara Madonnu fyrir tónleikaferðalag hennar árið 1990.

Ilmurinn sem lofar sælu

Margir tengja ilmvötn við Gaultier en árið 1993 kom dömuilmurinn Classique á markað og vakti líkamslögun ilmvatnsflöskunnar mikla athygli. Sumir sáu einfaldlega fyrir sér Madonnu sjálfa í keilubrjóstahaldaranum. Gaultier sagði að þetta væri ilmur sem lofaði sælu, ilmur sem fólk þekkir þig af með lokuð augun. Ilmvatnið einkennist af vanillu, munúðarfullu amber og appelsínublómum en það er enn jafnvinsælt í dag og þegar það kom fyrst á markað. Í tilefni af 50 ára afmæli tískuveldis Jean Paul Gaultier voru hannaðar tvær hátíðarútgáfur af hinum klassísku dömu- og herrailm tískuhússins. Bæði ilmvötnin koma í takmörkuðu upplagi.

Jean Paul Gaultier Classique Pin Up sækir innblástur í hina kvenlegu og skemmtanaglöðu dömu sem einkennist af glamúr og glæsileika. Líkamslöguð ilmvatnsflaskan er umvafin bleiku og glitrandi korsiletti en hún myndi sóma sér vel á hverju snyrtiborði. Ilmnóturnar byggja á vanillu og amber í bland við heitar nótur engifers og eldpipars. 

Jean Paul Gaultier Le Male Aviator er herrailmur sem einkennist af ferskleika og viðarkenndum ilmnótum sem endurspegla kynþokkafulla styrk karlmannsins. Til að auka hitann enn meira er violet absolute blandað saman við. 

Gamalt verður nýtt

Óhætt er að segja að síðasta hátískusýning Gaultier hafi verið stórfengleg en hún fór fram í Théâtre du Châtelet í París fyrir framan 2.500 áhorfendur. Yfir 200 flíkur voru sýndar og gengu ofurfyrirsætur fram á sýningarpallinn í bland við listamenn, kvikmyndastjörnur og annað áhrifafólk samfélagsins af öllum stærðum og gerðum. „Í þessari síðustu sýningu minni vildi ég endurspegla þráhyggjur mínar: gallabuxur, korsilett og sjóaraskyrtur,“ sagði Gaultier. Hann er þekktur fyrir að tala gegn fatasóun. „Það eru of margar flíkur til í heiminum og allt of mikið af fatnaði er hent,“ sagði Gaultier en margar flíkur þessarar sýningar voru unnar úr gömlum og notuðum fatnaði. „Þegar ég var yngri sýndi mamma mér hvernig hún saumaði sér pils úr gömlum buxum af pabba. Þetta hefur alla tíð fylgt mér á mínum ferli,“ útskýrði hann. 

Ofurfyrirsætan Karlie Kloss sýndi hönnun Jean Paul Gaultier á síðustu …
Ofurfyrirsætan Karlie Kloss sýndi hönnun Jean Paul Gaultier á síðustu tískusýningu hans. Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Rússneska ofurfyrirsætan Irina Shayk tók sig vel út á sýningarpallinum.
Rússneska ofurfyrirsætan Irina Shayk tók sig vel út á sýningarpallinum. Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Franska leikkonan og fyrirsætan Noemie Lenoir sýnir hér framúrstefnulega útgáfu …
Franska leikkonan og fyrirsætan Noemie Lenoir sýnir hér framúrstefnulega útgáfu af korsiletti. Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Bella Hadid var á meðal fyrirsætanna sem sýndu hönnun Jean …
Bella Hadid var á meðal fyrirsætanna sem sýndu hönnun Jean Paul Gaultier. Anne-Christine POUJOULAT / AFP
Jean Paul Gaultier kveður tískuheiminn eftir glæstan feril síðustu 50 …
Jean Paul Gaultier kveður tískuheiminn eftir glæstan feril síðustu 50 árin. Anne-Christine POUJOULAT / AFP









mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál