Klámstjörnur munu ganga á tískupöllunum á tískuvikunni í New York í vor. Klámstjarnan Asa Akira, klámleikstjóri og andlit Pornhub verður ein af þeim sem ganga pallana. Þetta er í fyrsta skipti sem klámmyndaleikkona frá Pornhub gengur tískupallana á tískuvikunni í New York.
Að sögn hönnuðanna sem hafa ráðið leikkonurnar mun þetta vera feminísk yfirlýsing. Ásamt Akiru munu Marica Hase og Jade Kush ganga fyrir þýska tískumerkið Namilia sunnudaginn 9. febrúar.
Á bak við Namilia er hönnunarteymið Nan Li og Emilia Pfohl. Þær segja að klám sé ekki eitthvað sem sé bara fyrir karla, konur hafi hinsvegar ekki fengið að stjórna hvernig það sé gert.