Franska tískuhúsið Roger Vivier gerði eftirminnilega auglýsingu á dögunum en hún fjallar um það að jólin endi bara alls ekki. Það var Gherardo Felloni, sem er listrænn stjórnandi Roger Vivier, sem á heiðurinn af þessari auglýsingu. Tískuhúsið var stofnað 1937 og hefur síðan þá verið leiðandi á sínu sviði.
Skórnir eru að sjálfsögðu dásamlegir í auglýsingunni, en litirnir og öll uppröðun ekki síðri.
Auglýsingin sýnir hvað fallegir litir eru nauðsynlegir á jólunum. Svo ekki sé minnst á þá hugmynd að gefa konunni fullt af pökkum sem innihalda allt sem hana langar í.