Ætlar að finna ástina í lífinu á árinu 2021

Stefán Svan er opinn fyrir ástinni á nýju ári.
Stefán Svan er opinn fyrir ástinni á nýju ári.

Stefán Svan Aðalheiðarson fatahönnuður og verslunarmaður segir að ef kórónuveirufaraldurinn hefur kennt honum eitthvað þá er það að elska sjálfan sig og finna síðan þessari ást farveg á fleiri staði. Hann er um þessar mundir að hvíla sig eftir jólaverslunina. Hann er annar eigandi Stefánsbúðar þar sem finna má fallega merkjavöru frá allskonar tímabilum. Hann er ánægður með viðskiptin á jólunum þó hann dragi ekki undan því að tíminn undanfarið hafi verið óvanalegur fyrir alla. 

„Í verslunarrekstri er tíminn milli jóla og nýárs notaður til þess að hvíla sig eftir jólatraffíkina og safna kröftum fyrir nýtt og spennandi ár. Eins og hjá flestum hefur árið mitt verið einkennilegt en ég átti mjög gott ár þrátt fyrir það. Ég ferðaðist mikið um landið og styrkti fjölskylduböndin.“

Hvernig ætlarðu að hafa áramótin?

„Áramótin verða róleg þetta árið eins og hjá vonandi flestum. Ég held upp á áramótin og afmæli systir minnar með kampavíni og góðum mat. Þetta verða hugguleg áramót.“

Hvað mælirðu með að fólk geri tengt fatnaði á gamlárskvöld?

„Gamlárskvöld er tilvalið til þess að klæða sig einstaklega mikið upp á. Hvort sem maður er einn eða í fjölmenni þá er það holt og gott fyrir sálina að fara skrefinu lengra en vanalega í klæðaburði“

Stefán Svan vonar að lífið verði eins eðlilegt og það getur hugsanlega orðið á nýju ári. 

„Auk þess er ástin ofarlega á listanum hjá mér. Ég vænti þess að finna ástina á nýju ári. Ég er óviss með hver það verður, en það mun koma mér á óvart. Því ástin er allskonar. En ég hef fengið tíma á þessu ári til að kynnast mér og finnst ég þannig meira tilbúinn að elska aðra manneskju eins og ég elska mig.“

Hvað er á óskarlistanum tengt tísku að næstunni?

„Þessa stundina erum við í búðinni að bíða eftir næstu línu Maison Margiela 6 og grunar mig að þar leynist eitthvað sem ég hef augastað á. Ég man sérstaklega eftir einum gallajakka sem mig langar í. Mig fer að vanta flotta strigaskó enda er vorið á næsta leiti.“

Stefán Svan segir jólin hafa verið dásamleg. Hann flutti í nýja íbúð og hefur komið sér vel fyrir. 

„Ég átti dásamlegt aðfangadagskvöld með fjölskyldunni. Ég hvíldi mig svo líka vel því á jólum má maður vera latur.“ 

Stefán er á því að árið 2021 verði spennandi í búðinni þar sem þau eru að vinna að nýjungum og að fara í spennandi samstarf sem hann hlakkar til að kynna fyrir viðskiptavinum betur.

„Þetta er samstarf sem við ætluðum að frumsýna á árinu 2020, en við frestuðum því og betrumbættum út af ástandinu. Mig langar ekki að segja of mikið þessu tengt. En þetta verður fyrir viðskiptavini okkar sem eru allskonar fólk með góðan smekk á gæðavörum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál