La Belle frá Jean Paul Gaultier er skemmtilegur ilmur fyrir þroskaðar konur sem kunna að meta vanilluilm í bland við bergamot. Ilmurinn kemur í glasi sem minnir á kvenleikann og virði konunnar í hvaða formi sem hún er.
Ilmvatnsglasið er búrgúndírautt, skreytt gylltum rósum, og sýnir margbreytileika kynþokkans og minnir á að konan er fædd falleg og alls konar. Ilmurinn er sætur og mildur en einnig dökkur og er grunntónninn íburðarmikill.