„Hryllileg“ forsíða Kidman vekur athygli

Nicole Kidman.
Nicole Kidman. AFP

Leikkonan Nicole Kidman prýðir Hollywood forsíðu tímaritsins Vanity Fair. Hefur forsíðan vakið mikla athygli, og þykir hún bæði vera illa stíliseruð og myndirnar unnar of mikið í myndvinnsluforriti.

Á forsíðunni klæðist Kidman stuttu pilsi og stuttum toppi frá Miu Miu. Hún er í gráum uppháum sokkum og támjóum skóm. Stílisti forsíðunnar er hin breska Katie Grand.

View this post on Instagram

A post shared by Vanity Fair (@vanityfair)

„Hún er farsæl leikkona sem hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna. Af hverju er hún klædd eins og skólastelpa? Ekki svalt,“ skrifaði einn undir færslu Vanity Fair á Instagram. „Væri til í að heyra um conceptið á bakvið þetta, því ég skil þetta ekki,“ skrifaði annar. 

Á Twitter hafa margir bent á hversu mikið myndin er unnin. Þá bar einn saman myndband úr tökunni við lokaútkomuna á forsíðunni. Þá þótti einum eitthvað bogið við hné hennar, skónna og mittið.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál