Skiptar skoðanir á gráu hári Pine

Chris Pine er búinn að láta ljósu lokkana fjúka.
Chris Pine er búinn að láta ljósu lokkana fjúka. AFP

Bandaríski leikarinn Chris Pine frumsýndi nýja klippingu á galakvöldi í Los Angeles um helgina. Nú skartar hann stuttu hári sem er farið að grána í hliðunum og passar því vel við skeggið. Nýja klippingin hefur fengið blendnar viðtökur og eru aðdáendur hans ekki sammála um hvort gráa hárið farið honum eða ekki. 

Pine skartaði lengra hári þegar hann hann var í Feneyjum í september að frumsýna kvikmyndina Don't Worry Darling sem hann leikur í. 

„Guð minn góður, ég er ástfangin af Chris Pine og öllu gráa hárinu. Raunverulegur silfurrefur,“ tísti einn spenntur aðdáandi. „Hárið er loksins farið,“ tísti annar.

Aðrir voru heldur leiðir yfir því að hann hafi látið ljósu lokkana fjúka. „Ég held að fólk muni núna skilja hversu mikil blessun langir lokkar Chris Pine voru. Þeir bættu bara einhverju við,“ tísti einn. „Ég sé mikið eftir hárinu hans Chris Pine,“ tísti annar. 

Pine skartaði lengra hári á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Pine skartaði lengra hári á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál