Íslandsmeistararnir leika til úrslita

Ariana Catrina Calderon með boltann í kvöld. Selma Sól Magnúsdóttir …
Ariana Catrina Calderon með boltann í kvöld. Selma Sól Magnúsdóttir fylgir henni. mbl.is/Valgarður Gíslason

Íslandsmeistarar Þór/KA leika til úrslita í Lengjubikar kvenna í fótbolta eftir 1:0-sigur á Breiðabliki á Leiknisvellinum í Breiðholti í kvöld. Mexíkóska landsliðskonan Stephany Mayor skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 63. mínútu.

Breiðablik stillti upp ungu liði í dag og voru fjórir leikmenn í byrjunarliðinu sem eru fæddir árið 2000 eða siðar. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, fædd árið 2001, kom svo inn á sem varamaður í síðari hálfleik. 

Þór/KA mætir annað hvort Valskonum eða Stjörnunni í úrslitum, en þau mætast á Valsvelli á sunnudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert