Birkir Már spilar ekki gegn Belgum

Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson mun ekki spila gegn Belgum í Þjóðadeildinni annað kvöld. Erik Hamrén landsliðsþjálfari skýrði frá þessu á blaðamannafundi nú rétt í þessu.

Birkir Már hefur verið í kapphlaupi við tímann að ná sér góðum af meiðslum en hann er ekki orðinn leikfær og segir Hamrén óvíst hvort hann spili vináttuleikinn á móti Katar á mánudaginn.

Birkir Már er einn leikmaðurinn sem heltist úr leik vegna meiðsla en níu leikmenn eru á sjúkralistanum, Gylfi Þór Sig­urðsson, Jó­hann Berg Guðmunds­son, Emil Hall­freðsson, Hólm­ar Örn Eyj­ólfs­son, Rún­ar Már Sig­ur­jóns­son, Jón Daði Böðvars­son, Björn Berg­mann Sig­urðar­son og Birkir Bjarnason og þá tekur Ragnar Sigurðsson út leikbann annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert