Birkir náði Eiði Smára

Birkir Már Sævarsson leikur sinn 88. landsleik í dag og …
Birkir Már Sævarsson leikur sinn 88. landsleik í dag og er fyrirliði Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birkir Már Sævarsson, sem er fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í vináttulandsleiknum við Eistland sem er nýhafinn í Doha í Katar, hefur nú jafnað metin við Eið Smára Guðjohnsen.

Birkir Már spilar í dag sinn 88. A-landsleik og þar með eru hann og Eiður Smári jafnir í 3.-4. sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn Íslands í karlaflokki frá upphafi.

Aðeins Rúnar Kristinsson, sem lék 104 landsleiki á árunum 1987 til 2004, og Hermann Hreiðarsson, sem lék 89 landsleiki á árunum 1996 til 2011, eiga fleiri leiki að baki en Birkir og Eiður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert