Opin æfing hjá kvennalandsliðinu á Laugardalsvelli

Sara Björk Gunnarsdóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í …
Sara Björk Gunnarsdóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í næstu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Ungverjalandi í undankeppni EM 2021 þann 29. ágúst á Laugardalsvelli. Fjórum dögum síðar mætir liðið svo Slóvakíu á Laugardalsvelli en þetta eru fyrstu leikir liðsins í undankeppninni og jafnframt fyrstu mótsleikir Jóns Þórs Haukssonar sem tók við liðinu í október á síðasta ári.

Landsliðið kemur saman til æfinga í næstu viku en heil umferð er í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni, á sunnudaginn kemur. Þann 27. ágúst verður opin æfing hjá kvennalandsliðinu á Laugardalsvelli þar sem ungir knattspyrnuiðkendur fá tækifæri til þess að kynna sér hvernig landsliðsæfing fer fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert