Breiðablik og Afturelding hafa komist að samkomulagi um kaup Breiðabliks á varnarmanninum unga Róberti Orra Þorkelssyni frá Aftureldingu. Frá þessu er greint á blikar.is.
Á blikar.is segir;
„Róbert Orri er 17 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 40 leiki með meistaraflokki. Í sumar spilaði Róbert nítján leiki með Aftureldingu 1. deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk.
Hann á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Íslands en eins og gefur að skilja var mikill áhugi honum meðal stærstu félaga landsins nú í haust.
Það er okkur Blikum mikil ánægjutíðindi að samkomulag hafi náðst milli félaganna og að Róbert Orri skyldi velja Breiðablik þar sem hann mun halda áfram að vaxa og dafna.“