Þórir og Albert til Framara

Þórir Guðjónsson tekur í höndina á Jóni Sveinssyni þjálfara Fram.
Þórir Guðjónsson tekur í höndina á Jóni Sveinssyni þjálfara Fram. Ljósmynd/Fram

Framarar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Inkasso-deildinni í fótbolta á næsta tímabili en Þórir Guðjónsson og Albert Hafsteinsson hafa skrifað undir samninga við félagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fram.

Þórir kemur til Fram frá Breiðabliki en auk þess hefur hann spilað með Fjölni og Val. Hann á að baki 147 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 47 mörk. Han skoraði eitt mark í sex leikjum með Blikunum í Pepsi-Max deildinni í sumar.

„Ég er glaður að vera búinn að skrifa undir hjá Fram og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir. Ég vil nýta tækifærið og þakka Breiðablik fyrir samstarfið og óska þeim góðs gengis næsta sumar. Mér finnst heillandi að snúa aftur til uppeldisfélagsins og hjálpa til við að koma félaginu á þann stað sem það á að vera.

Nonni þjálfaði mig í 2. flokki á sínum tíma og ég er spenntur að vinna aftur með honum. Mér líst vel á liðið. Ég þekki nokkur andlit í hópnum en svo eru þarna líka ungir og efnilegir strákar sem ég hlakka til að spila með,“ segir Þórir í viðtali við Fram. Hann samdi til tveggja ára.

Albert kemur til Fram frá ÍA en hann kom við sögu í 15 leikjum með liðinu í Pepsi Max-deildinni í sumar. Albert gerði þriggja ára samning við Framara.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn í Fram. Fram er félag með mikla sögu og það eru mjög jákvæðir og skemmtilegir hlutir í kringum klúbbinn núna og mikil uppbygging, bæði innan vallar sem utan. Það er frábært tækifæri fyrir mig að fá að taka þátt í því. Þjálfararnir eru reynslumiklir og vilja spila skemmtilegan fótbolta og vonandi nýtast mínir styrkleikar vel í þá hugmyndafræði. Ég þekki nokkra í leikmannahópnum og hópurinn er á góðum aldri. Ég tel að þetta sé rétt skref á þessum tímapunkti á mínum ferli,“ segir Albert.

Fyrr í haust samdi Fram við markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafsson, sóknarmanninn Alexander Má Þorláksson og varnarmanninn Gunnar Gunnarsson.

„Fram hefur leikið í Inkasso-deildinni undanfarin 5 sumur eða síðan liðið féll úr efstu deild 2014. Í haust tók ný stjórn við knattspyrnudeildinni og fjölmennur hópur Framara kemur í dag að starfinu. Einhugur er um að byggja ofan á jákvæða spilamennsku síðasta tímabils og stefnan er skýr. Félagið flytur í glæsilega íþróttaaðstöðu í Úlfarsárdal árið 2022 og markmiðið er að Knattspyrnufélagið Fram leiki þá í deild þeirra bestu,“ segir í fréttatilkynningu frá Fram.

Albert Hafsteinsson.
Albert Hafsteinsson. Ljósmynd/Fram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert