Umspilið í júní?

Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson eru lykilmenn í íslenska …
Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson eru lykilmenn í íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísland mun ekki mæta Rúmeníu í umspili um laust sæti á Evrópumótinu í knattspyrnu hinn 26. mars næstkomandi eins og til stóð. UEFA fundar nú um framtíð Evrópumótsins en lokamótinu, sem átti að fara fram í sumar, hefur verið frestað til sumarsins 2021.

Samkvæmt nýjustu fréttum af fundi UEFA með 55 aðildarsamböndum sínum mun leikur Íslands og Rúmeníu fara fram í júní á þessu ári á Laugardalsvelli. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir svo annaðhvort Búlgaríu eða Ungverjalandi um laust sæti á EM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert