Auglýsingastofan Brandenburg hlaut silfurverðlaun Clio fyrir auglýsingaherferðina er KSÍ kynnti nýjar landsliðstreyjur síðasta í sumar.
Gerði KSÍ samning við íþróttavöruframleiðandann Puma og vorunýjar treyjur kynntar í kjölfarið sem og nýtt merki KSÍ.
Í auglýsingunni og nýja merkinu er áhersla lögð á landvættirnar fjórar; griðungur, gammur, dreki og bergrisi sem sagðar eru hinar fullkomnu táknmyndir fyrir landslið Íslands.
Auglýsingin vakti misjöfn viðbrögð á sínum tíma. Voru margir ánægðir á meðan aðrir sökuðu KSÍ um fasisma. Dómnefnd Clio er í það minnsta hrifin, en verðlaunin eru með þeim virtustu í auglýsingaheiminum. Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.
Þess má geta að landsliðsmarkvörðurinn kom að auglýsingaherferðinni sem leikstjóri.