Hallur framlengdi á Akranesi

Hallur Flosason, fyrir miðju, fagnar ásamt liðsfélögum sínum síðasta sumar.
Hallur Flosason, fyrir miðju, fagnar ásamt liðsfélögum sínum síðasta sumar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Knattspyrnumaðurinn Hallur Flosason hefur skrifað undir eins árs samning við uppeldisfélag sitt ÍA en þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Hallur, sem er 27 ára gamall, hefur leikið með ÍA allan sinn feril en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið árið 2011.

Hann á að baki 82 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað fjögur mörk en alls hefur hann leikið 120 meistaraflokksleiki fyrir Skagamenn.

Hallur er mikilvægur leikmaður í okkar hópi og býr yfir mikilli reynslu sem nýtist vel í því uppbyggingarstarfi sem félagið vinnur að,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu Skagamanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert