Þrír leikmenn til liðs við Fram

Þrír leikmenn gengu í raðir Fram í dag.
Þrír leikmenn gengu í raðir Fram í dag. Ljósmynd/Fram

Það var nóg að gera á skrifstofu knattspyrnudeildar Fram í vikunni því félagið samdi í dag við þrjá leikmenn fyrir átök kvennaliðsins í 2. deildinni í sumar.

Erika Rún Heiðarsdóttir er 19 ára varnarmaður sem kemur til Fram frá Aftureldingu. Hún á að baki 41 leik í B-deild og bikar. Erika lék með Víkingi Ólafsvík áður en hún kom til Aftureldingar. 

Freyja Sól Kristinsdóttir er tvítugur varnarmaður og er uppalin hjá Sindra í Höfn í Hornafirði og á að baki 57 leiki í B- og C-deild og bikar. 

Oddný Sara Helgadóttir er 19 ára kantmaður sem mun stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fram í sumar, en hún hefur leikið með yngri flokkum Hauka, Fylkis og FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert