Ásdís með þrennu og Valur skoraði aftur átta

Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði þrennu gegn Keflavík í kvöld.
Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði þrennu gegn Keflavík í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valskonur léku Keflvíkinga grátt í Lengjubikar kvenna í fótbolta þegar liðin mættust á Hlíðarenda í kvöld en lokatölur urðu 8:0.

Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði þrennu fyrir Val og þær Dóra María Lárusdóttir, Mary Alice Vignola, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Elín Metta Jensen og Katla Tryggvadóttir skoruðu sitt markið hver.

Valur hefur þá unnið tvo fyrstu leiki sína í 1. riðli A-deildar með markatölunni 16:0 en Keflavík er með þrjú stig eftir að hafa unnið Selfoss 8:2 í fyrsta leik sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert