Virðist vera að saka dómarann um svindl

Sveinn Elías Jónsson og Orri Freyr Hjaltalín á hliðarlínunni í …
Sveinn Elías Jónsson og Orri Freyr Hjaltalín á hliðarlínunni í gær. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Orri Freyr Hjaltalín, þjálfari Þórs, var óánægður með dómgæsluna í 2:0-tapi gegn Fram á Akureyrarvelli í Lengjudeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Hann lét þá óánægju í ljós í viðtali eftir leik og gaf í skyn að dómarinn hefði ekki verið hlutlaus.

Fram vann 2:0 með mörk­um frá bræðrun­um Al­ex­and­er Má og Indriða Áka Þor­láks­son­um en eftir leik ávítti Orri Freyr dómgæsluna harðlega. „Þetta var bara til skammar hvernig hans framkoma var í leiknum í dag,“ sagði Orri meðal annars um Guðgeir Einarsson dómara er hann ræddi við fótbolta.net að leik loknum.

„Svo vil ég líka taka það fram að það er gjörsamlega galið að vera með aðstoðardómara frá hinu liðinu á Akureyri, þetta myndi aldrei vera tekið í mál í Reykjavík. KSÍ á alveg nógu mikla peninga til þess að geta fengið einhvern hlutlausan í að koma hérna og dæma þessa leiki,“ sagði svekktur Orri.

Ummælin til skoðunar innan KSÍ

Fótbolti.net hafði í kjölfarið samband við Þórodd Hjaltalín, formann dómaranefndar Knattspyrnusambands Íslands, og sagði hann ummæli þjálfarans til skoðunar. „Þetta er með ólíkindum. Það er eiginlega ekki hægt að lesa út úr þessu annað en að hann sé að saka aðstoðardómarann um að vera svindlari,“ sagði Þóroddur og ítrekaði að farið yrði yfir þessi ummæli betur innan nefndarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert