Uppselt á leik Víkings og Leiknis

Víkingar fjölmenntu á KR-völlinn í gær og verða með troðfulla …
Víkingar fjölmenntu á KR-völlinn í gær og verða með troðfulla stúku í leiknum við Leikni á laugardaginn kemur. mbl.is/Arnþór Birkisson

Þegar er uppselt á viðureign Reykjavíkurliðanna Víkings og Leiknis í lokaumferð úrvalsdeildar karla í fótbolta sem fram fer á laugardaginn kemur en þar geta Víkingar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár.

Víkingar skýrðu frá því á samfélagsmiðlum að unnið væri að því að reyna að koma fleiri miðum í umferð.

„Eins og staðan er í dag eru allir miðar uppseldir á leik Víkings og Leiknis sem fram fer næsta laugardag. Fundur er hjá stjórn knattspyrnudeildar í kvöld þar sem skoðað verður hvernig hægt verður að bæta við miðum. Tilkynning verður send út í hádeginu á morgun þriðjudag,“ segir í tilkynningu Víkinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert