Eiður Smári lætur af störfum

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eiður Smári Guðjohnsen er hættur störfum sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu en þetta kemur fram í tilkynningu sem KSÍ og Eiður sendu frá sér rétt í þessu.

Í tilkynningunni segir að komist hafi verið að samkomulagi um starfslok hans en KSÍ virkjaði endurskoðunarákvæði í ráðningasamningi hans og Eiður lætur af störfum 1. desember.

Eiður kom inn í þjálfarateymið strax og Arnar Þór Viðarsson var ráðinn landsliðsþjálfari í desember 2020 og hætti þá störfum hjá FH en þar hafði hann áður verið búinn að ráða sig sem aðalþjálfara til tveggja ára.

„Samkomulag um starfslok mín voru tekin með hagsmuni mína, landsliðsins og KSÍ að leiðarljósi. Ég vil þakka öllum innan sambandsins fyrir frábært samstarf undanfarið ár. Síðasta ár hefur verið mjög krefjandi bæði innan vallar sem og utan bæði fyrir mig persónulega sem og sambandið. Áfram Ísland,“ segir Eiður í sameiginlegri tilkynningu hans og KSÍ.

Eiður er 43 ára gamall og skoraði 26 mörk í 88 landsleikjum fyrir Íslands hönd á árunum 1996 til 2016 og er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi ásamt Kolbeini Sigþórssyni. Hans fyrsta þjálfarastarf eftir langan og glæsilegan feril sem leikmaður var hjá FH þar sem hann tók við liðinu ásamt Loga Ólafssyni á miðju sumrinu 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert