Lykilmaður framlengir í Vestmannaeyjum

Júlíana Sveinsdóttir (t.h.) í leik með ÍBV gegn Þór/KA sumarið …
Júlíana Sveinsdóttir (t.h.) í leik með ÍBV gegn Þór/KA sumarið 2020. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Júlíana Sveinsdóttir hefur framlengt samning sinn við ÍBV. Júlíana, sem er uppalin hjá ÍBV, hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár þar sem hún hefur leikið 104 leiki fyrir félagið í deildar- og bikarkeppni. 

Júlíana er 24 ára gömul og lék fyrsta leik sinn fyrir meistaraflokk ÍBV árið 2015 og varð bikarmeistari með félaginu árið 2017 eftir sigur á Stjörnunni.

Hún meiddist snemma á síðustu leiktíð en lék samtals níu leiki, átta í deildinni og einn í bikarnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert