Viðbragðsáætlun KSÍ vegna meintra alvarlegra brota samþykkt

Tillaga Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanns KSÍ, var samþykkt af stjórn sambandsins.
Tillaga Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanns KSÍ, var samþykkt af stjórn sambandsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, hefur samþykkt viðbragðsáætlun er lýtur að því þegar mál einstaklinga vegna meintra alvarlegra brota eru til meðferðar hjá rannsóknar- eða ákæruvaldi og/eða samskiptaráðgjafa.

Á fundi stjórnar KSÍ 19. maí síðastliðinn, undir dagskrárliðnum „Fræðsla, verkferlar og vinnubrögð“ var rætt um skýrslu starfshóps KSÍ sem var gefin út haustið 2021 og viðbrögð KSÍ. Einnig var rætt um skýrslu starfshóps ÍSÍ um verkferla, vinnubrögð og viðmið í íþróttahreyfingunni (apríl 2022).

Formaður KSÍ, Vanda Sigurgeirsdóttir, kynnti síðan tillögu um viðbragðsáætlun KSÍ. Málið var rætt en frekari umræðu var frestað til framhaldsfundar stjórnar 23. maí. Á framhaldsfundinum var neðangreint samþykkt:

„Stjórn KSÍ samþykkti að haft sé að leiðarljósi það meginviðmið, þegar mál einstaklinga eru til meðferðar hjá rannsóknar- eða ákæruvaldi og/eða samskiptaráðgjafa, vegna meintra alvarlegra brota, að þá skuli viðkomandi stíga til hliðar í hlutverki sínu hjá KSÍ á meðan meðferð máls stendur yfir. Það gildir jafnt um dómara, þjálfara, leikmenn, forystumenn, starfsmenn og aðra þá sem eru innan KSÍ.“

Í tilkynningu frá KSÍ segir að samþykktin hafi þegar tekið gildi og að stjórn KSÍ muni ræða önnur atriði í drögunum áfram og jafnframt óska eftir aðkomu laga- og leikreglnanefndar.

Þar segir einnig að stjórn KSÍ leggi mikla áherslu á að vandað sé til verka og að málið sé áfram unnið af ábyrgð, fagmennsku og yfirvegun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert