Brynjar Gauti á leið í Fram?

Brynjar Gauti Guðjónsson.
Brynjar Gauti Guðjónsson. Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason

Varnarmaðurinn reyndi Brynjar Gauti Guðjónsson gæti verið á förum frá Stjörnunni yfir í Fram en hann hefur lítið fengið að spila með Garðabæjarliðinu það sem af er tímabilinu í Bestu deild karla.

Fótbolti.net segir að samkvæmt heimildum hafi Fram gert Stjörnunni tilboð í Brynjar Gauta. Hann hefur aðeins byrjað einn af tíu leikjum Stjörnunnar í deildinni og komið við sögu sem varamaður í þremur öðrum. Brynjar á að baki 207 leiki í efstu deild og er einn af reyndustu leikmönnum Stjörnunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert