Åge biðst afsökunar: Ætlaði ekki að móðga neinn

Åge Hareide á æfingu íslenska liðsins í dag.
Åge Hareide á æfingu íslenska liðsins í dag. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur sent frá sér afsökunarbeiðni vegna ummæla sem hann lét falla á blaðamannafundi síðastliðinn föstudag.

Norðmaðurinn sagði á fundinum að það yrðu mikil vonbrigði fyrir íslenska liðið ef niðurfelling héraðssaksóknara í máli Albert Guðmundssonar yrði kærð.

Albert var á dögunum kærður fyrir kynferðisbrot, en héraðssaksóknari ákvað að ákæra landsliðsmanninn ekki. Hefur sú ákvörðun nú verið kærð, en þrátt fyrir það getur Albert spilað leikinn mikilvæga við Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á lokamóti EM á fimmtudag.

„Varðandi ummæli sem voru höfð eftir mér á blaðamannafundi síðastliðinn föstudag, varðandi reglur um val á leikmönnum í íslenska landsliðið, þá vil ég gjarnan skýra að ég átti aðeins við að sem knattspyrnuþjálfari vil ég auðvitað geta valið bestu leikmennina hverju sinni. Það hefur ekki alltaf verið hægt. 

Þá vil ég líka nefna að ég var alveg skýr á blaðamannafundinum með það að reglurnar eru eins og þær eru, og að ég myndi virða þær reglur. Ég biðst afsökunar á að hafa valdið misskilningi varðandi þetta, enda var það alls ekki ætlun mín að særa eða móðga neinn,“ er haft eftir Hareide í yfirlýsingu KSÍ í dag.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert