Sigvaldi skoraði þriðja besta markið á EM (myndskeið)

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði nokkur frábær mörk á EM.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði nokkur frábær mörk á EM. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Sigvaldi Björn Guðjónsson, hægri hornamaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, skoraði þriðja besta markið á Evrópumótinu 2022 í Ungverjalandi og Slóvakíu sem lauk um nýliðna helgi.

Hornamaðurinn skrúfaði boltann frábærlega í hornið í fyrsta leik Íslands gegn Portúgal í B-riðli mótsins í Búdapest en leiknum lauk með fjögurra marka sigri íslenska liðsins, 28:24.

Mark Þjóðverjans Cristoph Steinert hafnaði í öðru sæti og sigurmark Svíans Niclas Ekberg í úrslitaleiknum gegn Spáni í Búdapest var valið mark mótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert