Enska knattspyrnusambandið ætlar ekki að refsa José Mourinho fyrir móðgandi ummæli hans í garð læknisins Evu Carneiro.
Mourinho var ekki ánægður með Evu þegar hún hljóp inn á völlinn til að hlúa að Eden Hazard í leik Chelsea gegn Swansea í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, 8. ágúst. Mourinho var afar óánægður með það að Carnerio skyldi fara inn á völlinn, því samkvæmt reglum varð Hazard þá að fara af velli í stutta stund.
Enska knattspyrnusambandinu barst formleg kvörtun vegna atviksins í síðustu viku en í dag bárust þær fréttir úr herbúðum sambandsins að ekkert verði aðhafst í þessu máli gagnvart portúgalska knattspyrnustjóranum.