Forráðamenn Everton hafa mikinn áhuga á að fá Jamie Vardy, leikmann Leicester City, til félagsins. Sky Sports greinir frá í dag.
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, er mikill aðdáandi Vardy. Everton hefur hins vegar eytt 50 milljónum punda í Cenk Tosun og Theo Walcott í janúar og því ólíklegt að Vardy verði keyptur í mánuðinum.
Vardy er orðinn 31 árs og er ljóst að hann verði ekki ódýr. Arsenal bauð um 20 milljónir punda í Vardy á sínum tíma, en hann kaus að vera áfram hjá Leicester og skrifaði í kjölfarið undir nýjan samning.