Markmaðurinn Jamal Blackman skrifaði í dag undir eins árs lánssamning við enska knattspyrnufélagið Leeds United en hann er samningsbundinn Chelsea.
Blackman er annar leikmaðurinn sem Leeds fær til sín fyrir komandi leiktíð, en Lewis Baker, einnig lánsmaður frá Chelsea, leikur með liðinu á næstkomandi tímabili.
Hinn 24 ára gamli Blackman lék með Sheffield United í B-deildinni á síðustu leiktíð og hélt níu sinnum hreinu í 33 leikjum í öllum keppnum.
Hann hefur verið að láni hjá Östersund og Wycombe Wanderers á undanförnum árum og á hann fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Englendinga.