Wolves og Everton gerðu 2:2-jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Everton lék manni færri allan síðari hálfleikinn, en komst þrátt fyrir það í 2:1. Wolves jafnaði hins vegar tíu mínútum fyrir leikslok og þar við sat.
Brasilíumaðurinn Richarlison kom Everton yfir á 17. mínútu í sínum fyrsta leik með liðinu. Á 40. mínútu dró til tíðinda því Phil Jagielka fékk að líta beint rautt spjald fyrir ljóta tæklingu. Gylfi Þór Sigurðsson var í kjölfarið tekinn af velli fyrir Mason Holgate og Rúben Neves gerði vont, verra fyrir Everton og skoraði beint úr aukaspyrnunni.
Richarlison var aftur á ferðinni á 67. mínútu fyrir Everton og breytti stöðunni í 2:1, en Wolves jafnaði aftur á 80. mínútu með marki Raúl Jiménez og þar við sat.