Argentínski markaskorarinn Sergio Agüero er klár í slaginn með Englandsmeisturum Manchester City í kvöld en þá mætir City franska liðinu Lyon á útivelli í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Agüero fór meiddur af velli snemma í síðari hálfleik í viðureign Manchester City og Fulham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi en hann hefur jafnað sig af meiðslunum og æfði með liðinu í gær.
Lyon hefur vegnað illa gegn enskum liðum og hefur aðeins unnið einn af átta leikjum í Meistaradeildinni en liðið hafði betur gegn Liverpool á Anfield í október 2009.