Aron Einar Gunnarsson verður í byrjunarliði Cardiff í fyrsta skipti á leiktíðinni er liðið mætir Fulham á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Aron hefur verið að glíma við meiðsli í langan tíma, en landsliðsfyrirliðinn er búinn að jafna sig.
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem heimsækir Englandsmeistara Manchester City á sama tíma. Jóhann er búinn að vera lykilmaður í liði Burnley á tímabilinu.
Leikirnir byrja kl. 14 og mbl.is verður með allt saman í beinni textalýsingu.