Gylfi Sigurðsson og samherjar hans í Everton náðu sér ekki á strik gegn nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en Sheffield-liðið fagnaði sætum sigri 2:0.
Gylfi fær lægstu einkunn allra hjá Sky Sports en hann fékk aðeins 3 í einkunn og Liverpool Echo, staðarblaðið í Liverpool, gaf Gylfa 5 í einkunn fyrir frammistöðuna.
Gylfi hefur ekki náð að skora í fyrstu sex leikjum Everton í deildinni en hann hefur skorað eitt mark á leiktíðinni sem kom gegn Lincoln í ensku deildabikarkeppninni.