Markvörðurinn Hugo Lloris verður ekki á milli stanganna þegar Tottenham heimsækir Leicester á eftir í ensku úrvalsdeildinni samkvæmt fjölmiðlum á Englandi.
Lloris hefur verið einn besti markvörður deildarinnar í nokkur ár og fastamaður í liði Tottenham en hann er fjarverandi í dag þar sem hann og eiginkonan eignuðust sitt þriðja barn í morgun.
Paulo Gazzaniga verður því í markinu og Alfie Whiteman verður á varamannbekknum en sá er tvítugur og á enn eftir að spila leik fyrir Tottenham.