Miðvörðurinn Joël Matip verður klár í slaginn þegar Liverpool heimsækir Manchester United í stórleik helgarinnar í ensku knattspyrnunni á sunnudag.
Matip hefur misst af tveimur síðustu leikjum Liverpool vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Sheffield United í síðasta mánuði.
„Ég er byrjaður að æfa aftur og ég er klár í slaginn. Vonandi helst ég heill og ég get einbeitt mér að jákvæðari hlutum,“ sagði Matip í samtali á heimasíðu Liverpool í dag.
Brasilíski markmaðurinn Alisson er byrjaður að æfa á ný. Hann meiddist í 1. umferðinni gegn Norwich og hefur verið frá keppni síðan. Mo Salah æfði hins vegar einn í dag og er óljóst hvort hann verði klár gegn Manchester United.