Chelsea styrkti stöðu sína í fjórða sætinu

Olivier Giroud kemur Chelsea yfir á Villa Park.
Olivier Giroud kemur Chelsea yfir á Villa Park. AFP

Olivier Giroud reyndist hetja Chelsea þegar liðið heimsótti Aston Villa á Villa Park í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leiknum lauk með 2:1-sigri Celsea en Giroud skoraði sigurmark leiksins á 62. mínútu.

Kortney Hause kom Aston Villa yfir á 43. mínútu og Aston Villa marki yfir í hálfleik. Christian Pulisic jafnaði metin fyrir Chelsea á 60. mínútu af stuttu færi úr teignum eftir fyrirgjöf Cesar Azpilicueta.

Það var svo franski framherjinn sem skoraði sigurmark leiksins, tveimur mínútum síðar, eftir að hann sneri í teignum eftir sendingu frá Azpilicueta. Chelsea er með 51 stig í fjórða sæti deildarinnar og hefur nú fimm stiga forskot á Manchester United og Wolves en Aston Villa er í nítjánda sætinu með 26 stig.

Aston Villa 1:2 Chelsea opna loka
90. mín. Trézéguet (Aston Villa) á skot sem er varið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert