Tottenham náði í mikilvæg stig í slagnum um Evrópusæti í kvöld þegar liðið lagði Gylfa Þór Sigurðsson og samherja í Everton að velli á heimavelli sínum í London, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Tottenham komst með sigrinum í áttunda sætið með 48 stig, á betri markatölu en Sheffield United, en miklar líkur eru á að áttunda sætið gefi keppnisrétt í Evrópudeild UEFA. Everton er áfram í 11. sætinu með 44 stig.
Sigurmarkið var sjálfsmark á 24. mínútu leiksins en Giovani Lo Celso skaut þá að marki, boltinn hefði farið framhjá en fór í Michael Keane miðvörð Everton og þaðan í netið.
Gylfi lék á miðjunni hjá Everton en var skipt af velli á 67. mínútu leiksins.
Tottenham | 1:0 | Everton | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Moise Kean (Everton) á skot sem er varið Frá vítateig en beint á Lloris | ||||
Augnablik — sæki gögn... |