Wolves og Southampton skildu jöfn, 1:1, í lokaleik 9. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Varamaðurinn Pedro Neto jafnaði fyrir Wolves stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Theo Walcott fyrsta markið sitt á tímabilinu fyrir Southampton á 58. mínútu. Portúgalinn Neto kom inn á sem varamaður á 70. mínútu og fimm mínútum síðar var hann búinn að jafna og þar við sat.
Southampton er í fimmta sæti deildarinnar með 17 stig og Wolves í níunda sæti með 14 stig.