Gylfi Þór Sigurðsson lék stórt hlutverk í 1:0-sigri Everton á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Gylfi lagði upp sigurmarkið á Richarlison á 48. mínútu með góðri hornspyrnu.
Markið og önnur tilþrif má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.