Ítalinn til Liverpool?

Nicolo Barella gæti verið á leiðinni til Inter.
Nicolo Barella gæti verið á leiðinni til Inter. AFP

Liverpool hefur mikinn áhuga að fá ítalska knattspyrnumanninn Nicolo Barella frá Inter Mílanó. Félagið er sagt tilbúið að bjóða Naby Keïta og pening fyrir miðjumanninn.

Frá þessu greinir ítalski miðilinn Calcio Mercato.

Jürgen Klopp er sagður vera mikill aðdáandi leikmannsins sem hefur verið lykilmaður hjá Inter og ítalska landsliðinu sem vann Evrópumótið síðasta sumar. 

Inter vill fá 77 milljónir punda fyrir Barella en Liverpool-mönnum finnst það vera einum of mikið. Félagið virðist ætla að reyna að lækka verðmiðann með því að bjóða Keïta í staðinn, sem á eitt ár eftir af samningi sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert