Margrét Lára: Þessi strákur hefur allt

Í Vellinum á Símanum Sport í gær var rætt um frábært gengi brasilíska knattspyrnumannsins Richarlisons, sóknarmanns Tottenham Hotspur, að undanförnu.

Richarlison hefur skorað átta mörk í síðustu átta deildarleikjum í ensku úrvalsdeildinni og þar af tvö um helgina í 2:2-jafntefli gegn gömlu félögunum í Everton, eftir að hafa aðeins skorað eitt mark í fyrstu 15 deildarleikjum tímabilsins.

„Mér fannst ég sjá þessa takta hjá honum með Brasilíu á HM. Þá hugsaði ég að þetta væri frábær sóknarmaður. Það var í fyrsta skipti sem ég setti þann stimpil á hann.

Svo einhvern veginn hvarf hann algjörlega í ensku úrvalsdeildinni en svo hefur hann verið stórkostlegur upp á síðkastið. Þessi strákur hefur allt,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir.

Umræður hennar, Bjarna Guðjónssonar og Tómasar Þórs Þórðarsonar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert